Um stofuna

Saga stofunnar hófst þegar Teitur Jónsson kom heim frá tannréttinganámi í Osló og hóf störf við tannréttingar á Akureyri. Fyrst var stofan til húsa að Glerárgötu 20, en frá 1980 til 2017 að Glerárgötu 34. Þjónustusvæði stofunnar er allt Norður-, Norðvestur- og Norðausturland.


Gísli Einar tók við rekstri stofunnar sumarið 2009, en starfsliðið er óbreytt og eftir sem áður er markmiðið að veita tannréttingaþjónustu í hæsta gæðaflokki. Gísli Einar er eini starfandi tannréttingasérfræðingurinn á Norðurlandi.


Haustið 2017 fluttist stofan á efri hæð verslunarmiðstöðvarinnar Glerártorgs.

Tannréttingastofan er rekin undir firma nafninu Odont slf. kt. 541210-0670 og er skráð sem slíkt hjá Fyrirtækjaskrá.


Tannréttingastofan er rekin með leyfi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands Eystra, Geislavörnum Ríkisins, Tannlæknaleyfi frá Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðherra og Sérfræðileyfi til tannréttinga frá Landlækni.

Starfsfólkið á stofunni

Gísli Einar Árnason tannréttingasérfræðingur

Gísli Einar útskrifaðist sem tannlæknir frá Háskóla Íslands vorið 2002 og stundaði eftir það almennar tannlækningar í Reykjavík um þriggja ára skeið.

  • Gísli Einar fór í framhaldsnám við University of Rochester (NY), Eastman Dental Center, í Bandaríkjunum og lauk þar sérfræðinámi í tannréttingum í júní 2007.
  • Samfara náminu í  vann Gísli Einar að rannsókn á höfuðlagi og tannbogum fyrirbura.
  • Rannsókn Gísla Einars var valin sú áhugaverðasta innan tannréttinga- og bitfræðideildar hjá Eastman Dental Center árið 2007. Hann hefur kynnt rannsóknina á tannréttingaráðstefnum bæði hér heima og erlendis.
  • Gísli fékk sérfræðileyfi í tannréttingum frá Landlæknisembættinu í nóvember 2011.

 

Gísli stundar virka endurmenntun og er meðlimur í Angle Society of Europe, American Association of Orthodontists, European Orthodontic Society og Tannlæknafélagi Íslands.

Hildur Magnúsdóttir móttöku ritari

Hildur hefur starfað lengi á tannlæknastofunni og hefur mikla þekkingu á tannréttingaferlinu sem nýtist vel þegar kemur að samskiptum við sjúklinga, aðrar tannlæknastofur og Sjúkratryggingar Íslands. Hún sér um móttöku og afgreiðslu sjúklinga, tímabókanir og daglegt skipulag stofunnar.

Hrönn Jóhannesdóttir tanntæknir

 Hrönn hefur starfað sem tanntæknir síðan 1987 og sem aðstoðarkona við tannréttingar síðan 2002.
Í daglegu starfi sér Hrönn um að taka röntgenmyndir af kjálkum og tönnum, aðstoðar tannlækna, kaupir inn og aðstoðar á tannsmíðaverkstæði.

Sigurbjörg María Ísleifsdóttir tannsmiður

Sigga Maja er tannsmiður og smíðar öll tannréttingatæki og gómplötur sem notuð eru  við tannréttingarmeðferðir á stofunni. Hún tekur einnig mát og myndir af sjúklingum í upphafi og lok meðferðar.  Sigga Maja rak áður eigið tannsmíðaverkstæði á Akureyri.

Sigríður Bjarnadóttir aðstoðarmaður tannlæknis 

Sigga er líffræðingur og förðunarfræðingur og sinnir öllum gagnatökum (ljósmyndir, röntgenmyndir og 3D skann) á stofunni, auk þess að taka niður spangir og góma að lokinni meðferð og hreinsa tennur. 

Jana Dröfn Sævarsdóttir tannsmiður

Jana Dröfn lauk námi við Tannlæknadeild Háskóla Íslands.

Hún smíðar allt er viðkemur tannréttingum á stofunni en er einnig liðtæk í gagnaöflun og öðrum klínískum verkum á stofunni.

Tinna Hlín Ásgeirsdóttir aðstoðarmaður tannlæknis

Tinna aðstoðar á klíník en er einnig virk í að taka gögn, fjarlægja spangir og sinna almennum tannréttingastörfum.

Sigrún María Bjarnadóttir 

Sigrún María er líffræðingur og viðskiptafræðingur að mennt og starfar í hlutastarfi á stofunni við bókhald og launavinnslu.