Tannréttingaskinnur

Tannréttingaskinnur rétta tannskekkjur með glærum tannréttingaskinnum (gómum) án þess að þörf sé á að setja spangir á tennurnar.

Tannréttingaskinnur verða sífellt vinsælli kostur. Við höfum starfað með kerfi eins og Invisalign, Clear Correct og Ordoline frá árinu 2007.

Kostir

  • Tannréttingaskinnur eru sérsmíðaðar "ósýnilegar" skinnur sem skipt er út vikulega eða á 10 daga fresti.
  • Þær eru þægilegar í notkun og auðvelt er að halda tönnum hreinum.
  • Engar óþægilegar máttökur, lág bilanatíðni og engar brotnar spangir.

Hentar vel fyrir unglinga og fullorðna sem vilja bæta brosið!

Frekari upplýsingar á

Eru tannréttingaskinnur rétti kosturinn fyrir þig?

Komdu í fyrstu skoðun til að meta og mæla tann- og bitskekkju og ræðum möguleika á að bæta útlit tanna.


  • Ef farið er í tannréttingameðferð, verða teknar myndir, ljósmyndir, 3D módel og stafræn gögn af tönnum og andlitsfalli.
  • Gögnin eru send erlendis og  meðferðarplan er unnið í samvinnu við tannréttingasérfræðing.
  • Meðferð með tannréttingarskinnum hefst að nokkrum vikum liðnum.

Til að ná árangri þarf að nota skinnurnar 22 klukkustundir á sólarhring. Aðeins skal fjarlægja skinnur við tannburstun og á matmálstímum.

Tannréttingameðferð með skinnum lýkur yfirleitt með stoðbogum aftan á framtönnum og stundum með glærum gómum til notkunar á næturnar.


Kostnaður við meðferð er á bilinu 300 til 1.200 þúsund krónur, eftir umfangi.