Spurt og svarað

  • Hafa tannréttingatæki áhrif á tal, kyngingu, tyggingu o.þ.h.?

    Gómplötur, þanskrúfur, gómbogar o.þ.h. tæki sem fara upp í góminn geta haft áhrif á tal, kyngingu og tyggingu til skamms tíma. Að nokkrum dögum liðnum aðlagast þó tungan þessum breyttu aðstæðum í munninum.  Spangir og annað sem er límt framan á tennur hefur ekki áhrif á tal.


    Margir upplifa örlítið breytt tal í nokkra daga þegar tannréttingaskinnur/gómar eru notaðir

  • Er vont að fá spangir?

    Það er ekki vont að láta líma spangir á tennurnar, en tennurnar verða aumar í nokkra daga eftir að byrjað er að færa þær til í tannréttingunni.  Búast má við að þessi eymsli geti varað frá 2 dögum og allt upp í heila viku. 

    Það er mjög einstaklingsbundið hversu mikið hver og einn finnur fyrir eymslum við að fá spangir á tennurnar.  Sumir finna aldrei neitt á meðan aðrir taka verkjatöflur fyrstu dagana eftir að spangirnar eru settar á tennurnar.

    Ef þörf er á að taka verkjatöflur þá mælum við með verkjalyfjum sem fást án lyfseðils í apótekum, t.d. verkjalyfjum sem innihalda paracetamol (t.d. Panodil eða Paratabs) eða ibuprofen (t.d. Íbúfen).  

    Athugið vel að ekki sé til staðar ofnæmi fyrir lyfinu og farið ávallt eftir leiðbeiningum á lyfjaglasi um skammtastærðir.

  • Hvað geri ég ef spangirnar losna eða bila?

    Ef tækjabúnaður losnar eða brotnar þarf að laga hann eða líma við fyrsta hentuga tækifæri. Stundum má þó bíða þar til í næsta tíma. Það á sérstaklega við ef það sem brotnaði eða losnaði er ekki að meiða viðkomandi á neinn hátt.

    Hringdu og láttu okkur alltaf vita ef eitthvað bilar. 

  • Hverjir eru helstu áhættuþættir í tannréttingameðferð?

    Úrkölkun á glerungi (skemmdir), rótarstytting og í einstaka tilvikum rótardrep eru helstu áhættuþættirnir við að hafa spangir á tönnunum.

    - Ef tennur eru ekki vel hirtar þá er töluverð hætta á að úrkölkun verði á glerungi og tennur skemmist.  Oftast sjást þessar byrjandi skemmdir sem hvítar rákir framan á tönnunum, gjarnan við tannholdið og í kringum spangirnar sem límdar eru á tennurnar.

    Mjög mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um tannburstun og þrif.

    - Óveruleg rótarstytting verður hjá um 5-10% einstaklinga með spangir.  Alvarlegri rótarstytting getur orðið í u.þ.b. 1-3% tilvika.  Fylgst er með mögulegum rótarstyttingum með því að taka kjálkabreiðmynd á meðan á meðferð stendur.

    - Ef rótardrep uppgötvast á meðan á tannréttingu stendur þarf að rótfylla tönnina.  Þetta eru í lang flestum tilvikum tennur sem hafa orðið fyrir höggi/áverka eða slysi áður en tannrétting hófst eða á meðan á henni stendur.

  • Mun rými fyrir tennurnar aukast þegar kjálkarnir vaxa?

    Mjög líklega mun það ekki gerast. Um 8-10 ára aldurinn er rými í tannbogunum í hámarki, eftir það eykst það ekki þrátt fyrir að kjálkarnir eigi eftir að vaxa fram og stækka.

  • Þarf alltaf að fjarlægja tennur í tannréttingameðferð?

    Nei alls ekki alltaf, en stundum eru tennur dregnar/fjarlægðar ef mjög þröngt er um tennur og þörf er á miklu rými til að koma öllum tönnum fyrir. Einnig eru tennur stundum dregnar til að laga bit.

  • Hversu langan tíma tekur tannréttingameðferð?

    Það fer eftir eðli tann- og bitskekkjunnar hversu langan tíma tekur að rétta tennur og bit. Algengur tími fyrir fulla tannréttingameðferð eru tæp 2 ár, en getur tekið allt að 3 árum.

  • Hvers vegna tekur meðferðin stundum lengri tíma en áætlað var?

    Meðferðartími ræðst af mörgum þáttum; sumum sem tannlæknirinn hefur stjórn á, öðrum sem skjólstæðingurinn hefur stjórn á og enn öðrum sem engin hefur stjórn á, eins og t.d. vexti.

    Með því að mæta í alla heimsóknir á réttum tíma, nota tækjabúnað rétt (beisli, teygjur o.þ.h.), halda tannréttingabúnaði heilum og þrífa tennur vel er líklegra að meðferðin gangi vel og klárist á tilsettum tíma.  Ef spangir eru hinsvegar sífellt að brotna, fyrirmælum er ekki fylgt og viðkomandi missir af tímum þá er nær öruggt að meðferðin dregst á langinn og meðferðartíminn verður lengri en upphaflega var áætlað. 

    Tímaáætlunin sem við setjum niður í upphafi er til viðmiðunar, en að sjálfsögðu meðhöndlum við tennur og bit þar til ásættanlegri niðurstöðu er náð.

  • Hversu oft þarf ég að mæta?

    Til að tannréttingameðferðin taki sem skemmstan tíma þarftu að koma á 4-6 vikna fresti og láta skipta um boga, stilla það sem þarf að stilla og gera við ef eitthvað bilar.

  • Þarf ég að fara til almenna tannlæknisins þegar ég er með spangir?

    Já, það er mjög mikilvægt að fara reglulega til fjölskyldu tannlæknisins í eftirlit og hreinsun. Þó svo að þú mætir í tíma til tannréttingalæknisins reglulega þá er hann ekki að leita að skemmdum á milli tanna, undir fyllingum, eða að meta þörf fyrir skorufyllur, flúor o.þ.h.

  • Hvað eru forréttingar?

    Tannréttingar sem fara fram á meðan barnið er ennþá með margar barnatennur má kalla forréttingar. Forréttingar miða að því að minnka þörf fyrir tannréttingu þegar fullorðinstannsett er komið í munn, eða gera hana auðveldari og/eða með minni fyrirhöfn.

    Í forréttingum er oft reynt að vinna með eða á móti vexti, allt eftir þörf hverju sinni.

  • Afhverju þarf ég að nota beisli?

    Í ákveðnum tilfellum þarf að nota beisli með spöngum, eða jafnvel áður en spangir eru settar upp.  Þetta er yfirleitt gert til þess að hafa áhrif á vöxt kjálkanna og/eða færa tennur til.

    Beisli er notað á kvöldin og næturnar og hefur mjög lítil áhrif ef það er ekki notað í a.m.k. 8-10 klst á sólarhring.  Því er mjög mikilvægt að nota það eins og tannlæknirinn segir til um.

  • Þurfa allir að fá góm eftir meðferðina?

    Í lang flestum tilfellum mælum við með því að stuðningsgómur sé notaður eftir tannréttingameðferð.  Rétt notkun á gómnum hjálpar til við að halda tönnunum stöðugum og bitinu góðu.

    Algengt er að gómur sé notaður dag og nótt í u.þ.b. 6 mánuði, en eftir það á næturnar í 1-2 ár.

  • Er of seint að fá spangir á fullorðinsaldri?

    Það er aldrei of seint! Margir kjósa að fá spangir á unglingsaldri og er það heppilegt þegar þarf að vinna með vexti á kjálkum ef um bitskekkjur er að ræða. Á fullorðinsaldri er hinsvegar enn hægt að laga ýmsar tann- og bitskekkjur.  Mjög mikilvægt er að tennur og tannhold sé heilbrigt ef farið er í tannréttingar á fullorðinsárum.

  • Geta allir fengið glærar/hvítar postulínsspangir?

    Kostur postulínsspanganna er sá að þær eru fallegri og sjást í flestum tilfellum minna en hinar hefðbundnu stál spangir. Hinsvegar eru þær örlítið viðkvæmari og þola högg, hnjask og illa meðferð verr.  En almennt séð geta allir sem kjósa fengið postulínsspangir.

  • Geta allir fengið tannréttingaskinnur?

    Tannréttingaskinnur eru mest notaðar á fullorðna einstaklinga.  Almennt má segja að þær virki vel í þeim tilfellum þar sem aðeins er um tannskekkju að ræða en ekki mikla bitskekkju.  Minniháttar þrengsli og bil á milli tanna er t.d. auðvelt að laga með tannréttingaskinnum.  Sjúkratryggingar taka ekki þátt í kostnaði við meðferð með tannréttingaskinnum.

    Sjá frekari upplýsingar um tannréttingaskinnur á forsíðu.